gleraugnaglámur

Bryndís frá Munaðarnesi

12.02.2008 12:26:33 / bryndis-stranda

Hætt hér á blog.central en....

Já ég er hætt að blogga hér á blog.central.is. Þar sem það er bara vesen að halda út síðu hérna. Alltaf eitthverjar villur. Það gerist ansi oft að þegar maður er búin að skrifa helling þá þurrkast allt út:evil: Ekki gaman. Og svo voru núna í síðustu viku allar myndirnar sem ég búin að setja inn dottnar út, svo ég fékk nóg8| En endilega kíkið á nýju síðuna mína, þar sem ég ætla að halda út bloggi áfram:D

bibba.blog.is

Sjáumst þar

kveðja Bryndís

p.s. Endilega þeir sem eru með linkin minn á síðunum sínum, að breyta honum;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.02.2008 16:22:58 / bryndis-stranda

Sunnudagur

Sæl og blessuð!

Jæja það er bara allt gott að frétta héðan. Komin sunnudagur og ný vika að fara að byrja. Það er mjög fallegt veður núna, þó ég hafi ekkert farið út í dag, þá er sólin búin að láta sjá sig í dag og rólegt veður. Bjarni er ekki enn komin heim, átti von á honum í dag, en það var smá gleði með nokkrum vöktum í Alcan í gærkvöli, og er hann víst "slappur" eftir gleðina. En hann ætlar að reyna að koma í kvöld. Vonum það:lol: Við erum farin að sakna hans. Það er erfiðast með að hann sé að vinna svona langt frá okkur, er að sjá hann ekki í 5-6 daga í senn, en hann er yfirleitt hjá okkur í 5 daga í senn. Svo það er gott á móti. En þetta verður að venjast. Strákarnir sakna pabba síns alltaf þegar hann er að vinna. Þetta er nú ekki verra en að eiga sjómann sem eiginmann. Og eru nú sjómenn bara 1 sólarhring í landi á viku svo þetta er bara nokkuð gott hjá okkur:D En hann er búin að fá stöðuhækkun í vinnunni, er flokkstjóri, og vaktstjóri núna þars sem vaktstjórin er frá vegna veikinda í nokkra vikur. Og ekki veitir okkur á góðum launum og föstu og öruggum tekjum meðan við erum að byggja og ég ekki að vinna. Svo maður verður bara að fórna ýmsu á meðan.

Einar var hjá talmeinafræðing um daginn, og gekk bara vel, og á eftir að koma í ljós hvað kom út úr því. En hann er kannski með lesblindu, alla vega með einkenni að því. Og spurðu hún mig hvort ég væri lesblind. Og ef ég alltaf talið að ég væri lesblind, þó að ég hafi aldrei verið greind með það. Það var ekkert kannað þegar ég var krakki. En ég var mjög lengi að læra að lesa, og stafsetning var ekki góð. Og er lengi að lesa enn í dag, og les oft vitlaust. En þegar ég var lítil var ekki mikið spáð í þetta. Bara að maður var trassi í lestri og stafsetningu og ekki gert mikið til að hjálpa manni. En talmeinafræðingurin sagði að þetta væri tengt erfðum. Ég vissi það ekki. En gott ef það verður hægt að hjálpa honum strax með þetta, tímarnir hafa breyst svo. Einar er bara að verða 5 ára og það er strax farið að hjálpa honum. En allt annað var þegar ég var lítil:S:$

Sólveig Stefanía er alltaf að stækka, og í þessum mánuði verður hún 4 mánaða. Hún er svo yndisleg, svo glaðlynd, ég þarf ekki nema að brosa til hennar þá fer hún að brosa. Svo er hún farin að hlæja af manni líka. Maður er svo skemmtilegur:haha: Svo er hún svo hrifin af bræðrum sínum;)

Strákarnir eru inn í herbergi og Einar er með tónlist í BOTNI að hlusta á lög ur Abbabbabb. Og Indi sofnaði í rúminu sínu í öllum látunum. Voða stuð á heimilinu. Eins og alltaf;)

en jæja segi þetta nóg í bili og læt mynd af okkur mæðgum fylgja með, sem tekin var í gær

kv. Bryndís


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 23:00:54 / bryndis-stranda

Minn heitt elskaði orðin 35 ára;)

Jæja þá er maður komin heim aftur í Grundarfjörð, eftir bæjarferð. Fórum við sl fimmtudag suður og komum ég og börnin heim í dag. En Bjarni þurfti að fara að vinna í nótt, svo pabbi kom á móti okkur í Borganes svo Bjarni þyrfti ekki að keyra alla leið vestur og aftur til baka í dag.
Svo er hann Bjarni minn 35 ára í dag. Og gerðum við nú ekki mikið í tilefni dagsins, það var svo nóg að gera.

Við gistum hjá tengdó og þar var alveg dekrað við mann. Og fannst strákunum voða gaman að vera hjá ömmu og afa.

En við fórum með Inda til augnlæknis fyrir helgi og kom í ljós að hann þarf að fá gleraugu kall greyið. Hann er mjög fjarsýnn, með 4+ og 3+. Svo hann sér ansi illa. Við vorum farin að gruna ýmislegt, t.d var hann að kvarta oft um augun á sér, hann nuddaði augun eins og hann væri þreyttur í þeim. Og passar sig mjög mikið á að fara úr stólum og niður tröppur, eins og hann væri mjög óöruggur. Svo það er ekki skrítið eftir að þetta kom í ljós. Svo það er alveg jafn líklegt að hann þurfi að hafa gleraugu allt sítt líf. En það kemur bara í ljós. Fyrir mér finnst mér þetta ekkert hrikalegt, þar sem ég sjálf er
búin að vera með gleraugu síðan ég var 9 ára. Og þetta er nú ekkert svakalegt mál. Vonandi mun þetta ganga vel hjá honum, og hann vilji hafa þau. Erum búin
að velja gleraugu á hann. Voða fín gleraugu. Og verða þau tilbúin eftir 2 vikur.

Svo um helgina fórum við aðeins að verlsa og var nú met verslað að á börnin. Fannst mér alveg SVAKAlega gaman að koma inní barnafatabúðinrar og labba í
"bleiku" deildina. Og missti ég mig aðeins í stelpufötunum. En strákarnir fengu nú slatta af fötum líka. Fint að komast í útsölurnar.
Við kíktum svo líka í heimsóknir, til Guggu systir, Guggu systir hans Bjarna og Dabba og Hulddísi sem er æskuvinur Bjarna. Svo bakaði tengdamamma kökur og fínheit á
á laugardagin í tilefni afmælis Bjarna. ;)

Núna erum við loksins búin að fá dagsetningu á húsið okkar. Verksamningurinn er tilbúinn og á húsið að vera orðið fokhelt ekki síðar en 1. júní. Og að fullu lokið þann 1. júlí. Verktakin bjóst samt við að þetta yrði búið fyrr, en þetta er dagsetningin. Það er nú gott. svo í sumar verðum við á fullu að vinna í húsinu. Núna getur maður þá farið að skipuleggja annað í kringum þetta.:lol:

Það snjóar og snjóar. Þetta er bara ekta vetur. Núna þegar ég kom heim í dag, var innkeyrslan öll full af snjó. Og kemst ég ekki mikið út með barnavagnin, og er ég
bíllaus og þá er að treysta á sína nánustu hér að bjarga manni, sem er svo frábær og hjálpsamir:):haha:. Unnur systir ætlar að koma í fyrramálið og taka
strákana á leikskólan fyrir mig. Og hefur Sólberg alveg bjargað mér síðustu vikur þegar leiðnlegt er veðrið, og Bjarni er að vinna. Og svo á morgun verð ég að
komast út að moka snjó, svo ég komist ferða minna. Og líka að festa kaup á snjóskóflu. Maður hefur aldrei þurft að eiga snjósóflu fyrr, sem er bara fyndið.
Svo það er næsta fjárfesting á þessu heimili.:haha:

En ég verð að segja eitt, þó að ég hafi bara flutt úr höfuðborginni fyrir 4 mánuðum og búið þar í 10 ár, þá sakna ég hennar ekkert. Varð bara þreytt um helgina, umferðin þar,
og stressið. Maður var orðin alveg ónæmur fyrir þessu þegar maður bjó þarna, en fann það núna um helgina hvað það er gott að búa út fyrir borgina. Og sérstaklega
fyrir börnin að vera í svona rólegu umhverfi eins og er hér í Grundarfirði. Ljúft líf.:lol:

En jæja ætli þetta sé ekki nóg í bili
bið að heilsa ykkur

kv. Bryndís

Læt myndir af afmælisbarninu fylgja með, þegar hann var ungur og saklaus;)

 

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

20.01.2008 22:56:14 / bryndis-stranda

Flott mynd;)

Langaði til að setja inn hér flotta mynd sem var tekin í gær. Af Guðmundi Gísla og Sólveigu Stefaníu. Flottir krakkara með flott nöfn:haha:

                                                   Gummi og Veiga:lol:

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.01.2008 00:27:41 / bryndis-stranda

Það snjóar...

já það sko snjóar og snjóar. Ég horfi hér útum stofugluggan minn og það er snjóbylur úti. Bara ekta vetra veður. Langt síðan að það hafur snjóað svona mikið. Og að snjórin fari ekki strax aftur. en núna er búið að snjóa stanslaust eigilega í 5 daga.  Strákunum finnst sko ekki leiðinlegt að hafa allan þennan snjó, en verst að þeir eru búnir að vera veikir þessa viku og hafa því lítið komist út. Það er þessi árlega flensa sem herjar á okkur hér.  :S

Sólveig Stefanía fór í 3 mánaða skoðun í gær, og gæti ekki litið betur út. Stækkar svo vel, en hún er orðin 6340 gr og 63 cm.  Og svo var hún sprautuð í fyrsta skipti og stóð hún sig eins og hetja. Hún hló bara af lækninum, en þegar hún sprautaði hana, þá kom smá skrítin svipur á hana, en engin grátur. Rosa dugleg.:lol:

Bjarni fór aftur suður í dag að vinna. Búin  að vera hjá okkur í 4 daga. Tók eina aukavakt núna. Þetta er alltaf svo fljótt að líða. Áður en maður veit af þá er hann farin að vinna, svo aftur komin heim til manns.   Svo verður enn ein seinkunin á byggingu á húsinu okkar. En smiðurinn vill bíða með að byrja að steypa, til vorsins. Þar sem má ekki steypa í frosti, og yrði það bara vesen að byrja núna í miðjum vetri. Svo þetta dregst á langin, en það er nú kannski allt í lagi. Hver veit....kannski lækka þessir helv... vextir á lánunum á meðan eða seinna á árinu, svo það er bara gott að þetta dragist á langi, upp á það gera. En leiðinlegt að þurfa að bíða svona lengi eftir að geta flutt í húsið okkar.  

Í morgun var mömmumorgun hjá okkur mæðrum 2007 í Grundarfirði. Og hittumst við hjá mér í þetta sinn. Við vorum sjö saman komnar+börn. Og var þetta gaman eins og alltaf.  Ég var einmitt að spá í hvað það var gott að flytja hingað þegar ég var ólétt, þar sem þessi mömmumorgnar eru að hjálpa mér mikið að kynnast fólki hér.  Svo er ég líka komin í saumaklúbb með Hafrúnu systir.  Svo ég á félagslíf núna:lol:  en það var ekki mikið um það þegar ég bjó í bænum.

Svo erum við Hafrún farnar að fara út að labba á kvöldin, eða þau kvöld sem Bjarni er heima.  Förum út fyrir bæinn, í myrkrið. Það er gaman. Gott að fá hreyfinguna, tökum svona 40 min labb. En það er eitt sem ég þarf að fjárfesta í, eru gönguskór. Á ekkert svoleiðis.  Hef verið að fá gönguskó lánaða hjá mömmu, en það gengur ekki ti lengdar, sérstaklega þar sem mamma vill endilega koma með okkur í göngutúra.:haha:

En jæja, ætli það sé ekki best að fara að koma sér í bólið
læt eina mynd fylgja með af dúllunum mínum þremur
kv. Bryndís


» 7 hafa sagt sína skoðun

09.01.2008 23:33:40 / bryndis-stranda

Fastir liðir eins og venjulega

Jæja sæl og blessuð:lol:

Það er allt gott að frétta héðan úr Grundarfirði. Líf er komið í fastar skorður eftir jól og áramót, leikskólan byrjaður á fullu og allt eins og það á að vera. Strákunum fannst voða gaman að byrja aftur í leikskólanum eftir jólin:D Gott að sjá hvað þeim líður vel þar.

Ég lagðist upp í rúm í kvöld til að svæfa Veigu og auðvitað sofnaði ég með henni. Og svaf ég í 2 tíma. Dreif ég mig fram til að ganga frá þvotti og annað, og um að gera að blogga smá fyrir svefnin:haha:

Núna er maður með eitthvað helv... kvef og hálsbólgu. Ekki gaman, en það líður hjá sem betur fer:lol: Veiga litla er líka með smá kvef en það er lagast. Einar hefur alveg sloppið við pestir núna sem betur fer. Og vona að það haldist svoleiðis.

Bjarni er í miðri vaktarsyrpu núna, svo hann er fyrir sunnan. Í síðasta fríi hans, kláraði hann að fræsa vatnslás á grunninn. Svo núna er bara að fara kanna málin hjá smiðinum, og vita hvenær hann getur byrjað. Það hefur líka tafist hjá honum önnur verkefni, svo við vitum ekki enn hvenær hann getur byrjað. En vonandi bara sem fyrst. Það verður gaman að sjá þetta fara loksins fara í gang;)

Í gær kom Einar heim úr leikskólanum með perlað hjarta, sem ein stelpa gaf honum, og spurði ég hann hvort hún væri kærastan hans, hann vissi nú ekki hvað það þýtti. Og þá sagði ég honum það:) svo í kvöld hélt hann á hjartanu þegar hann sofnaði, og sagði við mig " mamma veistu hvað, hún Elva er kærastan mín" Voða sætur :haha: Svo maður er strax búin að eignast tengdadóttir;)

Núna á nýju ári, ætla ég að passa mig á því að detta ekki aftur í þá gryfju sem ég hef gert eftir fyrri meðgöngur mínar, en það er að fitna. Ég grennist alltaf á meðgöngunum, en bæti svo alltaf öllu á mig aftur og meira til. Svo núna er eins gott að falla ekki í þriðja sinn. Svo það er bara að hreyfa sig meira og passa hvað maður setur ofan í sig, en ég er ekki tilbúin að breyta alveg um lífstíl. Svo það er bara hafa allt í hófi:D Ég hreyfi mig miklu meira hér í Grundarfirði en ég gerði í bænum. Þar sem ég labba mest allt hér, sem ég þarf að fara. Nota barnavagnin svona 90% meira núna en ég gerði með strákana. Svo það ætti að segja eitthvað:lol:

En jæja ætli sé ekki best að fara að sofa, bið að heilsa ykkur, og læt eina mynd fylgja af Sólveigu Stefaníu sem ég tók í dag

með kveðju

Bryndís


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.01.2008 22:48:05 / bryndis-stranda

2008

Góðan dag og gleðilegt nýtt ár:lol:

Á þessu ári verð ég þrítug8) Vá hvað tímin er fljótur að líða. Mér finnst ekki langt síðan að ég varð tvítug. Og þá var ég heima í sveitinni, þann vetur. Komin 10 ár síða. Þetta er svo fljótt að líða. Ég var farin að vona að við værum flutt í nýja húsið okkar fyrir afmælið mitt sem er í apríl, en það verður sko ekki.....þar sem allt hefur tafist. Það hefði verið gaman að geta haldið veislu þar. En við flytjum ekki inn fyrr en í fyrsta lagi í sumar.

Á þessu ári verður Einar 5 ára, Indi 3 ára og Veiga 1 árs. Mér finnst svo stutt síðan að Einar fæddist, og er komin 5 ár síðan. Áður en maður veit af er maður farin að ferma börnin sín8) Margt sem maður spáir í þegar nýtt ár hefst:D Eins og það eru komin 8 ár síðan árið 2000 skall á, og fannst manni það stór merkilegt;)

Annars fór ég með börnin til mömmu og pabba í gær, og eyddum við gamlárskvöldi hjá þeim. Bjarni er að vinna svo hann var á vakt á gamlárskvöld. Unnur og co, Hafrún og co og Biggi og co komu til mömmu og pabba líka og borðuðum við frábærar máltíð saman:lol: Það var nautakjöt, lambakjöt, svínakjöt og kalkún á boðstólnum;) Og svo var desert í eftir rétt sem ég töfraði fram:haha::haha: Svo var sprengt í lokin, þrátt fyrir skelfilegt veður, Sólberg sá um að skjóta upp og gekk honum bara nokkuð vel miða við aðstæður;). Þetta var mjög gott kvöld. Mér fannst Skaupið bara helvíti gott, en ekki voru nú allir sammála um það:D

Indi er búin að vera veikur mest öll jólin, fékk steptacocca-sýkingu og svakalega eitlabólgu. Og fyrst í dag sem ég sé að hann er að lagast. Og er að verða sá sami Indi aftur;). Hann er búin að vera svo pirraður sem er skiljanlegt. Og er hann á pensilíni sem hann er ekki mjög hrifin af. Hann er ekki sáttur við að taka það8|. En það hefst að lokum alltaf;)

en í lokin set ég nokkar myndir í tilefni áramótana, gaman að sjá hvað maður hefur breyst í gegnum árin. 

kv. Bryndís

ég og Gugga árið 1978:haha:


ég, Gugga og Hafrún


ég á jólum:haha:


fjölskyldan árið 1992, ég að fermast:lol:


Við systur árið 1981


Við systur árið 2001við systkinin árið 2001


við systkinin og mamma og pabbi árið 2007, tekið núna á jólunum;)


» 10 hafa sagt sína skoðun

25.12.2007 22:10:21 / bryndis-stranda

Jóladagur

Gleðileg jól allir saman.

Jæja þá eru jólin komin. Yndislegur tími. Það var sko stuð í gærkvöldi þegar pakkarnir voru opnaðir. Einar beið allan daginn spenntur. Hann vissi að hann mætti opna pakkana þegar hann væri búinn að borða jólamatinn. Og allan dagin þegar hann fékk sér eitthvað að borða þá spurði hann hvort það væri jólamaturinn:lol:. Indi spáði ekki eins mikið í þessu öllu saman, honum fannst voða gaman að opna alla pakkana:o.

Bjarni var komin heim um kl 16 í gær, fór aðeins fyrr heim úr vinnunni. Sem var mjög gott:)Svo borðuðum við jólamatinn um 19:D Veiga litla var bara nokkuð róleg á meðan á þessu stóð allt saman. En var farin að ókyrrast í svona þegar pakkaflóðið var hálfnað. Einar fór ekki að sofa fyrr en að miðnætti. En Indi var orðin uppgefin kl 22;)

Svo í dag fórum við aðeins til mömmu og pabba. Og svo kíktum við líka til Hafrúnu og fjölskyldu. Voða notalegt að geta kíkt til fjölskyldunar á jóladag. Svo á morgun ætlar mamma og pabbi að halda jólaboð.

Á Þorláksmessu var skötuveisla haldin hjá Unni systur. Og vorum við þar komin öll Munaðarnes fólkið. Og Vignir frá Felli og Páley. Það var mjög gaman. Ég labbaði til Unnar með börnin, þar sem Bjarni var að vinna. Og það var búið að snjóa þá. Og var það nokkuð strempið að labba með vagnin yfir snjóinn:D. En það hófsst að lokum:haha:.

Ég og Einar skreyttum svo jólatréið saman á Þorláksmessukvöld, þar sem Indi var orðin svo þreyttur um kvöldið, að hann fór bara að sofa. Og var það mjög gaman. Einar vandaði sig mikið við skreytinguna:P

Það er voða jólalegt hérna núna. Búið að snjóa síðustu daga og enn snjóar. Og sýnist mér að það sé eitthvað að hvessa líka núna.Notalegt að liggja uppí sófa með teppi. Og borða konfekt og jólaöl;) Svo eru börnin öll sofnuð, sem er mjög sjaldgæft. Þar sem Veiga litla er gjörn á það að vaka á kvöldin;)

En jæja best að fara að horfa á imban, og síðan að maður fari að lesa bókina "Þar sem vegurinn endar" eftir Hrafn Jökulsson, sem ég fékk í jólagjöf;)

Hafðið það gott um jólin,

kær kveðja

Bryndís

Hér er mynd af okkur fjölskyldunni, jólamyndin í ár:lol: Tekin á grunnunum okkar, sem verður vonandi sem fyrst að húsi:haha:

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.12.2007 10:35:49 / bryndis-stranda

5 dagar til jóla

Góðan dag!

Jæja það eru bara 5 dagar til jóla, þetta er að skella á:lol:   Gaman gaman.  Ég er búin að pakka öllum pökkum inn og búinn að senda öll kort frá mér. Svo næst á dagskrá eru jólahreingerningarnar.        Tók eldhúsið í gegn í gær, og fínpússa ég það svo bara rétt fyrir jólin. Svo er þarf maður að taka allt húsið í gegn....nóg að gera.  Eitt leiðinlegt eru allir kassarnir sem fylgja okkur. Þar sem við erum bara í millibilshúsnæði, þá er maður ekkert að taka allt uppúr kössum og ekki pláss fyrir allt dótið okkar hér, svo það eru nóg að kössum hér hjá okkur og svo er enn meira hjá mömmu og pabba.  
Það verður gaman á næstu jólum þegar við verðum komin í húsið okkar.  (vonum alla vega að við verðum flutt fyrir næstu jól) ;):haha:  Það verður snilld.  Svo veit ég ekki alveg hvar við ætlum að setja jólatréið, ég þarf að breyta eitthvað stofunni til að koma öllu fyrir.  En það reddast.  

Bjarni er að fara suður aftur í dag að vinna. Og kemur heim næst á aðfangadag. Kemur bara beint í jólamatinn.  Vonum að það verði ekki brjálað veður á aðfangadag, svo hann yrði ekki veðurtæptur í bænum og komist ekki til okkar fyrir jól.  Eins og veðrið er búið að vera síðsutu viku, á gæti allt gerst.  rigning og ROK.  En það væri nú gaman að fá hvít jól þetta árið.

Indi er búin að vera veikur síðustu daga, en fór í leikskólan í dag. Hann var með eitthverja ælupest og hita. Vona svo sannalega að við fáum það ekki, svona um jólin.  Hann var mjög ánægður að fara út í morgun. Alltaf gaman á leikskólanum.   Einar er að lifa sig svo inní jólasveinana, hvaða jólasveinn kemur hvaða nótt og svoleiðis. Skyrgámur kom núna í nótt og Einar gaf honum skyr. Og var svo ánægður í morgun þegar hann sá að skyrið var horfið og fékk hann þakkarbréf frá Skyrgámi í staðin.  Og svo ætlar hann sko að gefa Kertasníkir kerti. Allt planað hjá honum.  Það var einmitt jólaball á leikskólanum í síðustu viku
og það var svo gaman að sjá svipin á börnunum þegar jólasveinarnir komu.  Og Einar var svo að vanda sig að vera ekki feimin við jólasveinana. Og sagði svo við mig á eftir jólaballið
"ég var bara smá feimin við jólasveinina"   Og Indi var alveg dolfallin fyrir þessum skrítnu körlnum.

Veiga litla stækkar með hverjum degi, orðin svo mannaleg;)  Svo svo glöð alltaf.  Það er svo fyndið þegar ég er að spjalla við hana og Indi er hjá mér, þá gerir hann alltaf allt það sama sem ég geri við Veigu.
Voða góður við hana. Svo er Einar mikið að segja henni sögur um hvað hann var að gera í leikskólanum og hvað hann fær í skóinn.

Núna eru jólakortin að detta um póstlúguna, mér finnst svo gaman að fá jólakortin. Ég opna þau ekki fyrr en á aðfangadagskvöldið. Bjarni var alltaf vanur að opna þau bara um leið og hann fékk þau. En hann er farin að bíða með þau til aðfangadagskvöld núna. Hann sá hvað var gaman að setjast eftir allt pakkaflóðið og lesa kortin.    Það verður örugglega aldeilis pakkaflóðið á þessu heimili þessi jól, þar sem einn fjöskyldumeðlimur er búinn að bætast í hópinn:haha:  Og svo er spurnig hvort pakkarnir fái að vera í friði undir tréinu. Það er stór spurning.  Við skreytum tréið á Þorláksmessukvöld.

Mín fjölskylda verður öll hér í Grundarfirði um jólin, Það verður gaman að upplifa það.  Keyra út gjöfum á aðfangadag og allt það. Gugga systir kemur svo líklega 22. des hingað.  Svo allir saman kommir.

En jæja ætli sé ekki best að segja þetta nóg í bili
bið að heilsa ykkur
Bryndís


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 21:33:17 / bryndis-stranda

það bætir í vindinn

Já það er að hvessa hér í Grundarfirði núna. Var víst spáð vondu veðri í kvöld og nótt á suðvestur landi. Og snjórin sem var komin, er að fara.

Annars er allt fínt að frétta héðan, Bjarni er að vinna núna, kemur aftur fyrir helgi. Við fórum sl fimmtudag í bæinn að versla. Og gekk það bara nokkuð vel, tókst okkur að gera mest, en eigum eftir 3-4 gjafir. Fórum eldsnemma á stað, og komum seint heim að kvöldi. Veiga litla var ekkert sérlega ánægð í búðunum. Fyrsta búðin sem við fórum í var Rúmfatalagerinn í Smáratorgi, og byrjaði hún eigilega að gráta, strax og við komum inn. Og er það eitt sem ég þoli ekki við Rúmfatalagerinn í Smáratorgi hvað það er þröngt þar. Í þessu stóra húsnæði að ekki sé betur skipulagt þarna. Mjög algengt að ryksugur séu á miðju gólfi og snúrurnar af þeim útum allt, Og tóm bretti hér og þar, fullar kerrur...og ég veit ekki hvað og hvað. Og þegar maður er með kerru sjálfur, kemst maður ekkert áfram. Og varð ég fljótt pirruð þarna inni. Og mundi ekki eftir helmingum sem ég ætlaði að gera þarna. iss iss:(8| En jæja nóg um þennan stað:lol: Svo fór maður á þessa týbísku staði, Smáralind og Kringluna. Og náttúrlega Toys 'r' us. Og lögðum við á stað heim um 9 um kvöldið. Og var maður alveg uppgefin þegar komið var heim. En við förum ekkert aftur suður fyrir jólin. Bjarni reddar því þá bara fyrir sunnan ef eitthvað vantar;)

Veiga litla er svo sæt, hún er alltaf að breytast núna. Það er svo fyndið, þegar ég er að spjalla við hana. Og það er eitt orð sem ég segi, og hún reyndir að herma eftir mér og brosir. Hún er svo glaðlynd. Hlær alveg af manni. Maður er svo fyndin:D Indi er líka farin að tala svo mikið, alveg alltaf að koma með ný orð, og setningar. Talar mjög mikið við mann. Og Einar spáir og spekulegrar í mörgu. Og hann mikið að spá í jólasveinana. Og ætlar sko að vera góður núna, svo hann fái nú ekki kartöflur í skóinn:lol:

Við gerðum nú ekki neitt um helgina. Bjarni var að vinna og ég ein heima með börnin, svo það var bara rólegt. Fórum aðeins út á leikskólalóð á sunnudaginn, en annars var bara hangið inni.

Öll börnin mín eru sofnuð núna, og slökkti ég á sjónvarpinu, og er alveg þögn í húsinu, fyrir utan vindin sem lemur á gluggana. Fyndið hvað maður nýtur þess stundum að hafa algjöra þögn í kringum sig, kannski sérstakalega þegar maður á 3 börn og ekki mikið um að það sé þögn á daginn:lol: Svo ég er farin að taka eftir því núna, hvað ég er gjörn á að setja bara sjónvarpið á mute eða slökkva á því á kvöldin og kíkja í tölvuna í staðin. Veiga litla er líka gjörn á að vaka svolítið á kvöldin, svo ég er eigilega hissa á því að þau séu öll sofandi í einu. Kannski að vindurinn rói hana núna. Mér finnst sjálfir svo notalegt að heyra í vindinum:D

Kannski að ég farin núna að pakka inn jólapökkunum á meðan allt er rólegt. Það er bara nokkuð góð hugmynd. Svo ég bið að heilsa ykkur í bili og læt myndir af Veigu fylgja í lokin með bræðrum sínum

 

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

05.12.2007 11:05:25 / bryndis-stranda

Styttist í jólin:)

Hellú!

Jæja það er allt gott að frétta héðan úr Grundarfirðinum. Búið að snjóa hér, og allt hvítt, en það er að hlýna aftur svo þetta verður örugglega farið á morgun. Við erum einmitt að fara suður á morgun að versla fyrir jólin. Vona að við náum að klára sem mest af jólainnkaupunum þá.

Síðast liðin laugardag, komu mamma, Hafrún og Unnur til mín og vorum við að gera aðventukransa. Ég hef aldrei gert aðventu krans áður, algjör skömm í því, en loksins varð að því að ég gerði einn slíkan. Og var útkoman bara nokkuð góð, þó að ég segi sjálf frá. Það var líka gaman að gera svona saman, við mæðgunar:D Gaman að gera eitthvað svona fyrir jólin með fjölskyldunni. Erum við líka búnar að mála kermik;)

Líka á laugardaginn var kveikt á jólatréinu hér í bæ. Og fór ég með börnin á það. Og leikskólakrakkarnir sungu, og Einar var svo duglegur aftur að syngja fyrir framan fólkið. Alveg svakalega flott hjá honum. Það hjálpa honum líka að Indi er svo ófeimin og ekkert mál fyrir hann. Og Einar fylgir Inda í því;)

Veiga litla vex og dafnar, búin að vera svo slæm í útbrotum í andlitinu, en það er nú að lagast sem betur fer.  Hún er svo yndisleg þessi elska, svo er hún farin að brosa og hjala.  Það er svo gaman að spjalla við hana:D  Hún er að verða 2 mánaða.  Þetta er svo fljótt að líða.  

Bjarni er komin heim aftur í vaktarfrí og verður fram á laugardag.  Hann verður í fríi yfir jólin, sem er mjög gott. Hann endar á aðfangadag, og brunar þá heim til okkar og kemur beint í jólamatin.  Hann er búin að skipta um vakt, þar sem honum var boðið Flokkstjóra staða þar. Sem er frábært. 

Núna erum við að bíða eftir því að bæjarráðið samþykki nýju teikninarnar af húsinu okkar.  Umhverfis- og skiptulagsráð eru búin að samþykkja það,  svo er það lagt fyrir bæjarráðið. Svo þetta mjakast hægt áfram. Er ekki alltaf sagt að "góðir hlutir gerast hægt":P

EN JÆJA ég segi þetta nóg í bili og bið að heilsa ykkur. Læt eina mynd fylgja hér þar sem við mamma og systur vorum í kransagerð

 

kveðja Bryndís 


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 10:18:35 / bryndis-stranda

Fæddir Grundfirðingar 2007

Góðan dag!

Vildi sýna ykkur mynd sem var tekin af okkur mæðgum sl fimmtudag. Var Grundarfjarðarbær að gefa öllum börnum fædd 2007 gjöf. Og var þetta mjög vegleg gjöf, fengum við pollagalla, handklæði, leikfang, bók, kjól, samfellur, sokkabuxur og fengu foreldranir líka smá með.....nuddolíur:D Við hittumst upp í safnaðarheimili á mömmumorgni og þar kom bæjarstjórin og ljósmóðirn á staðnum. Og færðu okkur gjafir. Og svo var boðið upp á kaffi og kökur.

hér er mynd af okkur mæðrum með börnin

 

Annars er allt gott að frétta, Það er brjálað veður hérna núna. Rigning og ROK. Bjarni er komin heim. Og er gott að hafa hann heima;) Tengdó komu í heimsókn til okkar í gær. Og var gaman að fá þau. Áttu þau 35 ára brúðkaupsafmæli einmitt í gær:D Strákunum fannst gaman að fá þau líka í heimsókn, Einar vildi bara að afi sinn léki sér inn í herbergi hjá sér.

Svo ætlum við nú að reyna að fara í miðri næstu viku suður að versla eitthvað af jólagjöfum. Það verður gaman að fara í smá búðarráp. Langt síðan að maður hefur röltað um Smáralind. Og gaman að kíkja inní nýju dótabúðirnar, hef ekki farið í þær ennþá

Annars er bara rólegt líf hjá okkur hér í Grundarfirði. Núna eiga allar teikningar af húsinu okkar að vera tilbúnar. Og Bjarni þarf að fræsa svolítið úr grunninum  og gera vatnslás í hann.  En þar sem veðrið er brjálað núna að það verður alla vega ekkert af því í dag. Vonandi verður betra veður á morgun.  Verktakin sem ætlar að steypa húsið upp, er að fara að byrja að smíða gluggnana fyrir okkur núna. Hann byrjar á því, því hann steypir víst gluggana inní.  Þetta dregst allt á langin hjá okkur. Svo er þetta bara.  Hlakka til þegar maður fer að sjá þetta rísa. Þá fer maður að sjá að þetta er allt raunverulegt. Að við séum að eignast okkur eigið hús.  

En bið að heilsa ykkur í bili

kv. Bryndís


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 09:49:03 / bryndis-stranda

Rólegheit:)

sæll og bless!


Jæja þá er best að blogga svolítið, Veiga litla sefur og um að gera að nýta tíman í smá blogg. Þó svo ég þurfi að fara að taka til aðeins líka. Og mig langar að baka bananabrauð líka. Geri það bara á eftir.  Veiga litla vex og dafnar. Breytist með hverjum deginum. Er farin að brosa, og hjala smá.  ALveg yndisleg.  Við mæðgur erum búnar að fara í göngutúr um Grundarfjörð síðustu tvö daga. Það er svo hressandi.  Ætla að reyna að gera þetta af vana þegar gott er í veðri. Gott að komast út og hreyfa sig. Verð að reyna að halda mér í formi.

Síðasta föstudag var verið að opna nýja matvöruverslun hér í Grundarfirði. Og sungu krakkarnir á leikskólanum við opnunina. Og Þetta var í fyrsta skipti sem Einar hefur þorað að standa fyrir framan alla með krökkunum. Hann söng að vísu ekki, en að standa fyrir framan alla  var stór skref fyrir hann. Alveg frábært.  Það var sko rétt skref fyrir hann að flytja hingað í minna umhverfi. Þar sem allir þekkja alla:)  

Ég fór til Þórhalls miðill í síðustu viku. Það var bara gaman. Amma Unnur kom og afi Jens.  Og voru þau með skilaboð til mín.  Þau eru víst að fylgjast vel með manni.

Eitt sem ég fíla svo vel við að vera flutt útá land, er myrkrið.  Minnir mig á að vera heima í sveitinni á veturnar. Og í gær kvöld leit ég útum gluggan og sá ég norðurljósin, stjörnunrar og tunglskinið. Það var alveg heiðskírt, og fjöllin hér í kring  sáust svo vel í tunglsljósinu. EKkert smá fallegt. Og ég fékk bara stíg í magan, því það var svo langt síðan ég sá svona. Og var ég bara komin heim í sveitinna í huganum.  Maður verður að fara eitthvern veturinn heim á Munaðarnes og vera í smá tíma. og upplifa þetta aftur. Eins og vera heima um jólin. Og gaman væri að leyfa krökkunum að upplifa veturin aðeins í sveitinni.    Einar er einmitt alltaf að tala um sveitina, og spyr hvenær við förum eigilega aftur á Munaðarnes.  Hann og Gummi Gísli eru alveg búin að ákveða sig hvað þeir ætla að gera þar, þegar þeir koma næst í sveitinna;)

Svo eru bara 1 og hálf vika þangað til að maður getur farið að skreyta, það er alltaf jafn gaman, og gaman verður að upplifa jólin hér.  En verður ennþá betra á jólanum eftir ár, þegar við verðum í okkar eigin húsi, og  meira pláss.  

Bjarni er að vinna alla þessa viku, og erum við þá bara 4 heima. Það tekur á stundum að vera ein svona með þrjú lítil börn, en þetta hefur bara gengið vel síðustu daga.  Þetta verður auðveldara þegar hún verður orðin aðeins eldri.  Það getur verið erfitt, þegar ég er að gefa henni brjóst. Og strákarnir þurfa á mér að halda. Þá getur maður lítið gert.  Svo það er ýmislegt sem þeir þurfa að þola, að mamma getur ekki gert allt eins og áður. En það er engin afbrýðisemi í þeim, þeir eru svo góðir við litlu sysir sína.  Einar passa mikið uppá hana. Og Indi segir að hann eigi hana.  Svo þeir eru bara mjög góðir við hana.  

En jæja best að segja þetta nóg í bili, og sent ég mynd hér af krúsídúllunum mínu.



kv. Bryndís


» 8 hafa sagt sína skoðun

09.11.2007 10:42:10 / bryndis-stranda

Sólveig Stefanía Bjarnadóttir

Góðan dag!

Þá erum við búin að skíra dóttir okkar. Og skírðum við hana í höfðuð á mömmu minni, Sólveig Stefanía:). Mig hefur alltaf langað svo að skíra eftir mömmu, og létum við verða að því núna:D

Athöfnin var bara lítil, Fórum í kirkjuna kl 19 í gærkvöldi. Okkur langaði bara að hafa þetta lítið og látlaust. Erum hvorugt mikið fyrir veislur. Svo við ákváðum þetta í sameiningu. Þetta var mjög rólegt og gott. Hún grét að vísu alla skírnina, en um leið og fékk nafnið sitt þá hætti hún að gráta;). Svo athöfnin var búin fórum við heim til okkar og buðum við uppá litla veislu. Presturinn spurði Einar hvort hann vildi halda á skírnarkertinu, en hann þorði ekki. En þá stóð Indi upp og kom til okkar og vildi halda á því:D Sem hann fékk, en hann byrjaði á því að blása á kertið:lol: Algjör grallari

Það er yndislegt veður hér í Grundarfirði í dag, svo við erum að spá í að fara út að labba með Veigu litlu í vagni á eftir. Í fyrsta skipti. Það verður hressandi.

Svo er Bjarni að fara að vinna á morgun, þá er fæðingarorlofinu lokið í bili. En hann á 2 mánuði eftir í því, svo hann tekur það seinna. Það verða viðbrigði að hafa hann ekki heima svona a hjálpa til með allt. En svona er þetta bara. Nú reynir á að vera 3 barna móðir. En eins og ég hef sagt, þá á ég marga góða að hér í Grundarfirði, sem eru allir tilbúnir til að hjálpa ef þess þarf;)

Sólveig Stefanía var vigtuð í gær og hefur hún þyngst um 300 gr á viku, svo það er mjög gott. Hún þarf ekki að fara í skoðun næst fyrr en 6 vikna. Núna er hún 3 vikna. Og bíðum við eftir fyrsta brosinu hennar:haha: Það er svo gaman þegar þau fara að brosa og hjala.

Núna eru teikningarnar sem við létum breyta af húsinu okkar, loksins að vera tilbúnar. Og vonandi fer þetta að rúlla í gang hjá okkur. Þetta er nú mikið mál að fara að byggja. En þetta verður þess virði þegar húsið verður tilbúið. Hlakkar mikið til að flytja í okkar eigið hús, með stórum garði:D. Það verður yndislegt.

En jæja segi þetta nóg í bili, læt eina skírnamynd fylgja með i lokin

 

kv. Bryndís 


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.11.2007 17:05:36 / bryndis-stranda

update frá Grundarfirði

Jæja það er bara allt gott að frétta héðam úr Grundarfirðinum.

Litla skvísan vex og dafnar. Hún er svo vær og góð. Drekkur og sefur til skiptist. Bara draumabarn:D Núna er hún einmitt sofandi í vöggunni sinni;) Svo það er um að gera að blogga aðeins.

Fæðingarorlofinu hans Bjarna er að ljúka. En hann verður í viku í viðbót í fríi. En að vísu fer hann suður á morgun í óvissuferð með slökkviliði Alcans, og verður frá í 2 daga. Svo þá reynir á að vera ein heima með 3 börn. En að vísu er Gugga systir að koma hingað um helgina og ætla að vera mín hjálpahönd á meðan hann er í burtu8).

Prinsessan er 2 vikna í dag. Og erum við búin að ákveða nafn og viljum bara fara að ljúka við skírnina. Og er ég ekki mikið fyrir svaka veislur, svo við erum búin að ákveða það að hafa bara litla athöfn, í næstu viku. Bara að kvöldi til. Bara lítið og látlaust, annað hvort hér heima hjá okkur eða i kirkjunni. Það verður gaman að geta farið að kalla hana nafninu sínu.

Svo er ég farin að mæta á mömmumorgna hér, á fimmtudögum. Þá hittumst við mæður sem eiga börn 2007. Og er það gaman. Gott að kynnast fleirum hér. Við erum um 9 konur eins og er sem hittumst:D

Og núna er ég alveg að missa mig í bleikum fatnaði. Gaman að vera með litla dömu á heimilinu. Þegar ég er að þvo þvott og sem allan bleiku fötin, ég er enn að venjast því:lol: Er svo vön að vera með allt blátt. Svo það er bara gaman:lol:

Strákarnir eru voða góðir við hana. Einar vill alltaf vera að kyssa litlu systur og Indi strýkur henni um kinnar, en er stundum svolítið harðhentur, hann fattar ekki alveg hvað hún er brothætt:lol:. En þetta gengur allt svo vel. Léttara en ég bjóst við fyrstu vikurnar. En það verður kannski erfiðara þegar Bjarni byrjar aftur að vinna.   En maður á góða að hér í bæ, svo það ætti allt að reddast:P

Svo gerist ekkert í byggingarmálum hjá okkur.  Erum enn að bíða eftir arkitekinum.  Erum samt búin að fá teikningar frá verkfræðinginum. Svo það stendur á þessum arkitekt.  Svo verktakin sem ætlar að byggja fyrir okkur getur farið bráðlega byrjað , og það fyrsta sem hann gerir er að byggja gluggana.  Svo vonandi fer þetta að rúlla á stað sem fyrst.  En með þessu framhaldi þá veit ég ekki hvenær við ættum að geta flutt inn. En það kemur allt í ljós:lol:

 en jæja ætli þetta sé ekki nóg í bili, ég set mynd af stúlkunni okkar. Bið að heilsa ykkur

kv. Bryndís

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Klukkan